VIKA 1
Dagur 1
Jæja ég steig á viktina í morgun, spennt en samt voða smeik. Langaði ekkert rosalega að sjá þyngdina
.
Málið er að ég hef þyngst heilan helling eða næstum 10 kg eftir að ég fæddi tvíburastrákana mína. Hvernig stendur á þvi!!! Reyndar er ástæðan hreyfingarleysi, leti og óhóflegt mataræði í óhollustu og á röngum tíma. Taldi mér í trú um að ég þyrfti nú að safna á mig svo það væri meira að taka af og það væri miklu skemmtilegara, ekki djók.
Ég er biluð en svona er nú þetta
. Ég hef svo ótrúlega mikla trú á mér að það er ekkert smá ræði, enda tel ég mig mikla Gyðju
, og hér með ætla ég að sanna það fyrir mér og þeim sem mig langar að sanna það fyrir.
p.s Borðaði 3 x yfir daginn... létt fæði, tíndi miðanum 
Gyðja L
Dagur 2
Þriðjudagur 11.03
8
o Te m/2 tsk sykri & mjólk og 3 stk hrökkbrauð m/létt&laggott & osti
12:00 500 gr Íþrótta súrmjólk, 250 gr Smoothie bláberja og 275 gr Ávaxtabíllinn salat rækju
15:00 500 gr Húsavíkur Létt-Jógúrt, 1 banani og 100 gr baunablöð.
18:30 6 stk apríkósur þurrkaðar
20:00 2 skálar pulsur í grýtti og kartöflumús. (var mjög svöng) og 1 glas af vatni.
21:30 ½ ltr af vatni.
Kveðja Gyðja L